Thursday, November 09, 2006

Hvað á maður að gera

Það er enginn skóli einsog áður hefur komið fram og maður hefur ekki rassgat að gera núna á daginn. Pabbi myndi eflaust stinga uppá að lesa bækur, kannski að maður geri það þó það sé nú ólíklegt. Á miðvikudaginn fer ég til Nýja Sjállands og því fögnuðum við í gær uppá seinasta miðvikudaginn hér þangað til við komum næst og förum aftur. Kannski að maður fari bara að baka?

deigið:3 egg 100gr smjörlíki 200 sykur, 250gr hveiti 1 tsk vanullidropar 2 tsk lyftiduft 2msk kakó
kremið: 100gr smjörlíki, 200gr súkkulaði, 2 egg og 1dl flórsykur
byrjar á að bræða smjörlíkið og mixa saman með eggjum og sykri
bætir svo restinni í og hrærir
kremið þá seturu smjörlíki og súkkulaði saman og bræðir
bætir svo eggjum og flórsykri
bakar við 180 gróður í 12 til 18 mín

P.S lakkrís er vondur í útlöndum

6 Comments:

Anonymous Martha Steward said...

Þú ert nú meiri kallinn að vera birta uppskriftir á blogginu þínu, greinilega mikið að gerast í þínu lífi.

10:49 PM  
Anonymous Óli Palli said...

hehe, je.

Fyndið samt að fagna síðasta miðvikudeginum áður en þið farið og komið tilbaka. Kannski svipað og maður fagnar síðasta laugardeginum í hverri viku.

12:41 AM  
Anonymous Óli Palli said...

Ertu líka að grínast hvað þetta er fyndið með 3000km girðinguna hehe. Heimsku afkomendur glæpamanna þarna í Ástralíu.

12:47 AM  
Blogger Peru-Unnar;) said...

blessadur Unnar fraendi dinn hérna ;) dundadi mér vid ad lesa allar faerslunar dínar :P hafdi ekkert ad gera í gaer :P verd ad segja ad da er mjog gaman ad lesa bloggid ditt :P og já mér finst detta med girdinguna mjog skondid en ég á eftir ad filgjast vel med blogginu ;)

k.v. Unnar (perú)

11:36 AM  
Anonymous Óskar said...

Haha

Eitthvað kannast ég við þessa uppskrift :)
Hvernig gekk þetta hjá þér ?

Þú verðuru eiginlega að koma með sneið hingað til Nz lands svo við getum metist um hvor kakan varð betri.

Heyrðu, ég fór allt í einu að spá. Það væri sniðugt fyrir ykkur að fara panta ferjuna. Einhver sagði mér að stundum er full í hana. Farðu bara á google og skrifaðu ferry wellington og þá finnuru þetta.

Svo þarf ég sennilega að fara finna eitthvað tölvukort og merkja inn á hvar ég bý svo þið finni mig einhverntímann.

12:56 PM  
Anonymous Óskar (aftur) said...

22 stigi hiti, heiðskýrt og nánast logn á fimmtudag og föstudag hér í Welly. Hef ekki séð svona fína spá lengi, vonandi að þetta standist allt saman þegar þið mætið.

2:05 PM  

Post a Comment

<< Home