Tuesday, November 14, 2006

Ég og fræga fólkið

Frekar steikt að þegar við vorum duglegir í gyminu var helmassaður og cuttaður gaur alltaf að lyfta þar. Seinna sáum við Vignir í blaðinu að þetta var Mr. Australia, munum samt ekki nafnið á kappanum. Svo fyrir ca. 2 vikum vorum við Vignir að spila Tennis og það voru 2 mjög góðar stelpur að spila á næsta velli. Í blaðinu í gær var mynd af annari þeirra, henni Önnu, en sú er best í Tasmaníu. Verð að viðurkenna að maður leit út einsog skítur að spila hliðiná á þeim en við svindluðum okkur á þennan völl, kunnum náttúrulega ekki neitt og einhver meistari að spila hliðná okkur. En maður leit alltílagi út í gyminu því maður lítur alltaf betur út en feita fólkið sem er að reyna að grennast.

Fór í partý í gær, seinasta partýið með fólkinu sem maður kynntist hér en það eru allir á leiðinni heim eða frá Tasmaníu allavega á næstu dögum. Ég gleymdi myndavélinni minni í gær en ég ætlaði að taka video af fólki segja það sem ég var búinn að kenna þeim í íslensku. Setningin sem ég kenndi flestum var "Ég svaf hjá mömmu þinni, systur þinni og kærustinni þinni, farðu í rassgat". Pontus náði þessu helvíti vel enda ætlar hann að nota þessa setningu þegar hann kemur til Íslands.

Nú erum við, ég, Vignir og Maiken, að fara að pakka fyrir ferðina til Nýja Sjállands. Þar ætlum við að hitta Óskar sem er btw rauðhærður. Við ætlum að leigja húsbíl og taka roadtrip um báðar eyjar landsins, norður og suður eyjuna. Frá NZ fljúgum við svo til Brisbane, þaðan förum við til Gold Coast og ætlum okkur að leigja hús þar. Ætla að reyna að leita mér að vinnu þar, einhverjar uppástungur hvar ég ætti að sækja um væru kærkomnar.

Mun örugglega ekki blogga neitt núna fyrr en í desember en þá mun koma massívt blogg með myndum frá ferðinni í Nýja Sjállandi, bless í bili.

8 Comments:

Anonymous Óskar, ekki rauðhærði said...

Heyrðu góði


Ég er barasta ekki rassagat rauðhærður, ekki lengur allavega.


Aaaallavega, ég sendi póst á ykkur félaga með korti hvar ég bý í Welly.

Látið mig svo vita kl hvað þið komið cirka, svo ég verði vaknaður og svona.

0064 211086540

Heyrumst, góða ferð !

7:59 PM  
Anonymous Kristinn said...

Óskar óskar óskar, einu sinni ginger, ávallt ginger.

Heyriði drengir ég held bara áfram að æla yfir mig í VR II meðan þið skemmtið ykkur í ferðinni. Takk fyrir það.

Ég mæli með því að þú reynir að finna "bækistöð 4"/bæjarvinnuna á Gold Coast og verðir flokkstjóri þar. Hlýtur bara að vera nice.

10:43 AM  
Blogger Björk said...

Góða ferð strákar, smá vottur af öfund hérna hinum megin. Mikið verður þetta gaman hjá ykkur. Já Þórarinn ég býð spennt eftir myndum með ferðasögunni.

3:10 AM  
Anonymous nonni said...

ég sit hér í vr2 útældur eftir Kristinn, klukkan er að ganga tólf og það er ekki líft úti fyrir kulda. ég öfunda þig bara ekki neitt.

það eina jákvæða sem ég sé fram á er bjór eftir klst

10:11 AM  
Blogger Þórarinn said...

Sma ferdasaga her, eg er staddur i bae sem heitir Rotarua, hofum keyrt nuna rett yfir 1000km og thad eru 260 km framundan i kvold til Auckland hofudborgar NZ. Forum fra sudureynni til nordureyjarinnar med bat, skodudum jardhitasvaedi, hofum badad okkur i heitri a thar sem vid mokudum okkur med kisil. I morgunn voknudum vid og fengum okkur morgunverd uti, fyrir utan bilastaedi hja einhverjum stormarkadi, gerist ekki meiri white trash stemning en thad. For i golf thar sem vid reyndum ad vinna 1000 dollara, fekk 5 bolta og 2 foru i stongina og skoppudu i burtu, frekar steikt. Forum svo i "spa" i kvold sem er nokkurnveginn bara venjuleg sundlaug a Islandi. Nokkud vel af ser vikid bara a 3 dogum en thangad til naest bleble P.S thad eru jolagjafir a leidinni heim.

8:17 PM  
Blogger Björk said...

Jólagjafirnar eru komnir og allir urðu mjög hissa, átti ekki von á þessu.
Hey þessi ástralska hafði aftur samband og ég átti að spurja fyrir strákaútivistarfélagana hvort hún væri sæt?

12:23 PM  
Anonymous Eva María said...

hæhæ strákar!

sé að það er mikið spennandi um að vera hjá ykkur... mega gaman ;) bara smá öfund hérna megin :)

svo er sandra náttla að koma til australia að kíkjá ykkur núna bráðlega... náiði eitthvað að hitta hana?

9:08 PM  
Anonymous Kristinn said...

Ég býst bara við að mín jólagjöf hafi týnst í pósti eða þá að hún sé enn á leiðinni.

Og miðan við þessa ferðalýsingu þá ert þú staddur í Grindavík.

1:15 AM  

Post a Comment

<< Home