Wednesday, November 01, 2006

Ég fekk mér bara ecstasy

Bara einn dagur eftir af skólanum svo er ég kominn í 4 mánaða sumarfrí, hversu sweet er það. Þið heima getið bara haldið áfram að lifa í skammdegisþunglyndinu og hugsað um prófin haha.

Hef verið að furða mig svolítið á því hvað fólk er loose á eiturlyfjunum hérna. Við skandinavíufólkið Ég, Vignir, Maiken, Anne og Pontus erum ábyggilega eina "alþjóðlega fólkið" hér sem finnst eitthvað að því að "poppa E". Kanarnir og hver meðal-localspaði hér hafa öll prófað þetta og finnst fátt eðlilegra enda ekkert feimnismál að tala um þetta. Heima ertu dópisti ef þú hefur reykt létt eiturlyf nokkrum sinnum en mér finnst að það ætti bara að halda áfram að vera þannig frekar en hitt.

Horfði á áhugaverða mynd í dag sem heitir "The rabbit proof fench". Það fjallar um half-caste fólk hér í Ástralíu en frá 1918-1970 voru börn sem voru blendingjar, frumbyggjar og hvítir tekin frá frumbyggjafjölskyldum sínum og færð í einhverkonar "þú átt að alast upp sem hvítingi" búðir og þau svo hvött til að eignast hvíta maka til að aðskilja frumbyggja frá hvítum. Myndin fjallar um 3 Stelpur, 14, 11 og 8 ára sem flúðu úr svona búðum til að fara aftur til mömmu sinnar en þær löbbuðu 2500 km til þess sem tókst á endanum. Þær löppuðu um það bil 40 km á dag sem verður að teljast helvíti gott afrek. Ein Stelpan sem hét Molly sem að lést fyrir 3 árum var tekin aftur og sett í sömu búðir en hún labbaði aftur heim og þá með 6 mánaða dóttur sína á bakinu. Dóttir hennar Annabelle var svo tekin af henni og hún ólst upp hjá hvítri fjölskyldu og vildi ekkert með frymbyggjauppruna sinn að gera. Þær sáust aldrei aftur, mission complished hjá ríkinu þar. Ótrúlegt hvað frumbyggjar hafa mátt þola hérna en þessi börn sem voru tekin eru kölluð "The stolen generation". Það er sífellt verið að skora á ríkið hér að segja sorry fyrir hvernig það hefur farið með "The aboriginals" en ríkið segir að það geti ekki sagt sorry fyrir eitthvað sem þeir sem fóru með völdin á undan þeim gerðu. Í dag er það sama að gerast fyrir börn hjá fólki sem koma hingað sem ólöglegir innflytjendur, börnin eru sett í einhverjar búðir í eyðimörkinni sem er mjög umdeilt vegna þess sem á undan hefur gerst.

Fyndið samt með þetta rabbitproof fenche. Hér gerðu Ástralir 3000km langa girðingu, lengstu griðingu í heimi til að einangra kanínur frá allri vesturströnd Ástralíu. Girðingin þjónaði engum tilgangi því kanínurnar grófu holur og fóru undir girðinguna.

Dömur og herrar sem eru ekki að fara í sumarfrí, haldiði bara áfram að gera það sem þið gerið.

8 Comments:

Blogger Björk said...

Ömurlegt með frumbyggja og innflytjendur en fyndið með kanínurnar.

Djö.. öfunda ég þig að vera kominn í sumarfrí. Það er nice að flytja bara alltaf á milli Ástralíu og Íslands þá er sumar næstum allt árið. Ok eflaust betra verður í Ástralíu allt árið.

Hvað verðuru staddur um jólin? Þarf maður ekki að fara að huga að því að senda þér pakka? Maður á kannski bara frekar að millifæra á þig...

12:13 AM  
Blogger Þórarinn said...

Já jólagjafirnar verða sendar á nýtt heimilisfang en við ætlum okkur að leigja í Gold Coast en höfum ennþá ekki reddað okkur húsnæði. Peningur er heldur ópersónuleg gjöf, samt er allur peningur vel þeginn (: Vorum að spá í þessu húsi

1:14 AM  
Anonymous Óskar said...

Þessir Ástralir eru greinilega allir með lítinn Tim í sér. Frekar harðir í horn að taka eins og einhver myndi orða það. Það er nú alveg lýsandi fyrir eitthvað kosningaloforð að byggja einhverja svona "best í heimi" girðingu sem á að bæta allt. Þetta var gert á Íslandi. Þjóðargjöfin '68 eða eitthvað álíka þar sem lengsta girðing Ísland var gerð yfir hálendið til að skipta því í tvent til að koma í veg fyrir riðusmit og þessháttar hjá rollunum. Svo kom vetur og snjór og girðingin skemmdist en sjóðurinn var tómur þannig það var ekkert hægt að laga hana. Enda orðið vandamál næstu ríkisstjórnar eða eitthvað álíka.

Líst vel á þetta hús, ég vil fá að gista þarna í desember !

9:57 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það er verið að ath hvort að það sé hægt að redda eins og 2 miðum í viðbót á The Falls Festival þó að allt sé löngu orðið uppselt!
Mynduð þið hafa áhuga á því =)

Kv. Sandra

11:30 PM  
Anonymous Andri said...

Værirðu til í að senda mér einn svona "The aboriginals". Eru þetta ekki annars svona svartir dvergar?

4:59 PM  
Anonymous Óskar said...

Ekki segja upphátt Andri hvaða fantasíur þú ert með í gangi varðandi þennan dverg!

1:44 PM  
Blogger Þórarinn said...

Haha Andri í klandri, þetta fólk er bara yfir höfuð ómyndarlegt myndi ég segja

4:27 PM  
Anonymous Andri said...

Ég var meira að spá í að nota þetta til að pakka inn jólagjöfum og fara út með ruslið

5:03 AM  

Post a Comment

<< Home