Wednesday, September 27, 2006

Tevita Latu

Sasha, ástralska stelpan sem býr með okkur les geðveikt mikið af "Séð og heyrt" blöðum og þar var grein um rugby-gaur sem heitir Tevita Latu. Í greininni sem ég las stóð að þessi fagri, stórbrjósta kvenmaður hafi byrjað að reyna við hann en hann vildi ekkert með hana hafa og sagði henni að hypja sig. Eftir það var hún ekki sátt og þá byrjaði hann að henda frönskum í hana eins fast og hann gat. Þá sagði hún honum og þroskast brotabrot en þá kýldi hann hana í andlitið og nefbraut hana. Þetta gerðist í maí á þessu ári en þetta var nýlegt blað með myndum og honum að vinna á burger king að afplána refsingu fyrir glæp sinn. Auk þess sem hann er bannaður í rugby-deildinni bæði í Nýja-Sjálandi og Ástralíu.

Hvað með það en Tim Nígeríumaðurinn kom svo með sínar, að mörgum fannst helvíti sterkar skoðanir á þessa grein en hann sagði nokkurn veginn þetta: "HAHAHA, HAHAHA, AAHAHAHA!!!! This is my man, man this is my man, I like this man, I respect him for what he did man HAHAHA". Hinir í húsinu voru nokkuð skelkaðir á þessari skoðun Tims en að sjálfsögðu er þetta frekar fyndið samt. Umræður byrjuðu svo um rétti kvenna í Ástralíu og Íslandi og svo var Tim spurður hvort það hafi ekkert verið möguleiki fyrir hann að fara til Evrópu í nám. Svarið var jú skemmtilegt en hann sagði: " My friend went to Sweden man, women man, they have to much rights there for example if you and your wife get separated, you have to give her money, thats ridiculous man" svo talaði hann um mismun á körlum og konum í Nígeríu og man bara eftir þessari setningu en það er mjög erfitt að skilja Tim vegna skrítins framburðs, "For example in Nigeria men never go to the kitchen man"! Við hlógum bara og sögðum ekki neitt, enda kemst maður aldrei að þegar hann byrjar að tala. Ég hef ekki hugmynd afhverju hann bætti seinasta punktinum við sem rök afhverju konum ættu ekki að hafa rétti. Getur verið af því að hann talar STANSLAUST um ekki neitt og hættir aldrei og fer úr einu umræðuefni í allt annað. Við Vignir hlógum bara enda hin fínustu rök hjá honum Tim. Stelpurnar urðu hinsvegar ekki sáttar hehe.

Nánar um þennan Tevita Latu gaur hér

Bleeeee


3 Comments:

Anonymous Kristinn said...

Ég segi puhhh á þennan Tevita Latu en Nígeríubúinn Tim er svo sannarlega minn maður. Hann er með þetta allt á hreinu.

11:31 PM  
Anonymous Nonni said...

tim á alþingi

4:14 AM  
Anonymous Oskar said...

Djofull langar mig ad hitta tennan Tim madur, hann er rosalegur.

5:34 PM  

Post a Comment

<< Home