Staðreyndir um Ástralíu
Nú er maður búinn að vera hérna í rétt tæpa 3 mánuði og maður er búinn að læra svona hitt og þetta um þessa þjóð. Ætla að reyna að telja upp eitthvað sem maður hefur lært.
Aussie rules eða footy einsog innfæddir kalla hann er lang vinsælasta íþróttin hér. Þar er spilað á krikketvelli en ef þið viljið vita nánar um þessa íþrótt fariði bara á wikipedia. Úrslitaleikurinn "The Grand Final" er á morgunn en mér og Vigni er boðið í úrslitaleikjapartý. Það er mjög gaman að horfa á "footy" en það má slást en menn geta verið reknir útaf ef þeir deila við dómarann, reyndar er bannað að kýla einhvern aftan frá, menn geta verið reknir útaf fyrir það. Vinsælt bragð í þessari íþrótt til að grípa boltann er að stökkva með hnén í bakið eða hnakkan á andtæðingnum og hrinda honum í burtu þannig og grípa svo boltann. En ef maður grípur boltann eftir meira en 15 metra sendingu fær maður fríspark, reglurnar eru nokkuð einfaldar en ætla ekki að fara nánar útí þetta hér.
Fótbolti er örugglega svipað vinsæll hér einsog ....tja einhver íþrótt sem er ekki vinsæl heima. Atvinnumannadeild var stofnuð í fyrra, A-league. Hún kom í staðinn fyrir gömlu ASL áhugamannadeildina því öll liðin í henni voru of ethnical, sum lið voru kölluð eftir því t.d. Bosníuliðið, Ítalíuliðið o.s.f.v. og það var slegist of mikið í leikjunum. Meistaradeildin er samt sem áður sýnd á frírri sjónvarpsstöð hér en leikirnir eru klukkan 4:30 að nóttu til en ég hef horft á 1 leik hingað til Benfica vs Man Utd.
Orð yfir það að vera blekaður er að vera Megatit
Frumbyggjum í Ástralíu (betur þekktir sem "The aboriginals") hefur að mestu verið útrýmt (90%) og alveg þangað til á áttunda áratugnum voru aboriginal börn tekin af foreldrum þeirra til að vernda þau. Það þekkist enn hér í Ástralíu að frumbyggjabörn geta ekki unnið á íþróttaviðburðum en þau mega samt sem áður keppa, gott dæmi um þetta er Cathy Freeman en hún er fædd 1972, hún vann allt í barnaskóla en fyrsta hvíta konan fekk verðlaunin, ótrúlegt en satt.
Áströlum þykir gaman að búa til stóra "hluti" erfitt að útskýra þannig að ég set bara link
Ástralía er næst feitasta þjóð í heimi á eftir Bandaríkjunum
Froskar eru að gera allt vitlaust í austurströndinni á meginlandinnu. Þeir hafa fundið aðferð til að breyta geninu í þeim þannig að aðeins karlfroskar fæðast til að útrýma þeim. Þeir hafa ekki enn sleppt þessu genaafbrigði lausu en þetta er víst eitthvað umdeilt
John Howard er forsetisráðherra Ástralíu. Hann er nokkuð hress tappi sem hikar ekki við að segja skoðanir sínar og hann er á móti múslimskum siðum og hikar ekki við að tjá sig um þær. T.d. setti hann fram dæmisögu í fréttunum í vikunni og sagði : "Ef þú vilt fara í Mosku þarftu að fara úr skónum til að fara inn og ef þú ert á móti því að fara úr skónum máttu ekki fara inn, það sama gildir um Ástralíu ef þú ætlar að koma hingað þarftu að fara eftir gildum sem eru í þessu landi". Þetta vakti ekki mikla kátínu hjá múslimum en honum var nokkuð slétt sama. Þegar hann átti að verja það sem hann sagði sagði hann að þessi orð væru ekkert sérstaklega beint að múslimum einum og sér. Hann er mjög umdeildur í Ástralíu en hefur verið við ráð síðan 1996.
Martin Bryant var hress gaur sem gekk berserksgang í Tasmaníu 28. og 29. apríl 1996. Hann drap 36 manns og særði aðra 37 á 2 dögum. Byssulögum í Ástralíu breytt til muna eftir þetta framlag hans. Fólk vildi að hann yrði drepinn fyrir gjörðir sínar en hann er núna í Fangelsi í Hobart, borginni sem ég bý í. Það er bannað að taka viðtal við hann og taka myndir af honum auk þess sem hann má ekki komast í neinar upplýsingar um hvað hann gerði.
Slangur er notað hér í gríð og erg en ég man ekki mikið en reyni að telja eitthvað upp. How are you mate, hi Mate, thanks mate, bye mate eru ótrúlega algengar setningar en þetta orð mate er að tröllríða öllu hér. Venjulega er bjór drukkinn í lítlum glerflöskum sem eru kallaðar stubbies. Have a tea er að fá sér kvöldmat, veit ekki afhverju þeim líkar ekki við orðið dinner. Diggers er orð yfir hermenn. Maður segir ekki thank you heldur Ta, þannig að takk virkar líka. Thongs eru sandalar og sand shoes eru hlaupaskór. Football getur verið fótbolti, ástralskur fótbolti (footy ef þú hefur áhuga annars football) eða rugby(hef ekki talað við marga sem hafa áhuga en þeir sem hafa áhuga af rugby kalla það football), Íþróttafréttamennirnir eru ósammála hvað skuli vera kallað football en fólk talar venjulega um soccer um fótbolta nema gaurar sem stunda soccer, þá kalla þeir hann football, þetta getur verið mjög ruglingslegt og ekki er enn vitað hvað er football hér. Australia, öll bæjarheiti og fylkisheiti fá gælunöfn t.d. Aussie, Tassie og Timmy svo eitthvað sé nefnt en hef bara heyrt Timmy en það er einhver bær sem heitir Timworthy eitthvað svoleiðis.
Meat pies er vinsæll matur hér, ca. staðgengill pylsu heima.
Öll íþróttalið fá gælunöfn t.d. Fótboltalandsliðið kallað socceroos og kvennaliðið Matildas. Rugby liðið Wallabies og kvellaliðið Wallaroos. Körfuboltaliðið er kallað Boomers og keppir reglulega við Ný-sjálenska landsliðið sem er kallað Tall-blacks, kvennaliðið er kallað Opals, og hjólastólakörfuboltaliðið er kallað The rollers sem minnir mig á South Park þáttinn þegar Jimmy og Timmy gengu í The Crips og Timmy var kallaður little roller. Sundmenn eru dolphines en veit ekki hvort maður eigi að fara útí þegar pabbi hans Stans breytti sér í dolphin.
Meira var það ekki í bili

10 Comments:
Snilld! En afhverju má gaurinn ekki sjá neinar upplýsingar um það sem hann gerði? Þessi Martin Bryant
Ég hef líka orðið vör við mikil slangur þegar ég er að tala við fólk frá ástralíu, hef venjulega talið mig tala ágæta ensku, en ástralska er greinilega annað mál!
Ef þið verðið í Adelaide einhverntíman í kringum áramótin þá verðiði að láta mig vita =)
Sandra
Ég verð nú að segja að þetta "Big things" dæmi er soldið súrt, sérstaklega "Big boxing crocodile" hluturinn.
En annars sýnist mér Ástralir bara vera hressir (fyrir utan fjöldamorðingjann auðvitað).
Það er klárlega roadtrip og skoða alla þessa stóru hluti, eitthvað það steiktasta sem ein þjóð hefur tekið sig til og gert.
Hann gerði þetta til að verða frægur og hann varð frægur fyrir þetta. Aftur á mót má hann ekki vita af því, þannig að hann fær ekki að sjá blöðin um þetta, eitthvað svoleiðis.
Það má alveg skreppa til Adelaide um áramótin enda væri það bara snilld að hitta þig og þitt föruneyti í "undir niðri".
Stóru hlutirnir eru klárlega súrir en ekki má gleyma að íslendingar eiga stærstu dómaraflautuna(hjá olís ef hún er þ,e.a.s. ennþá til) sem er alveg ótrúlega súrt og stórt rúm hjá Ikea, líka sauerkraut.
Gleymdi líka að bæta inn einum punkti, ef þú kýst ekki í kosningum þar sem þú ert á kjörskrá í eru það 200 dollarar í sekt eða um 11.000 kall, má deila um hvort það sé góð hugmynd eða slæm en mér.... er alveg drullusama.
Heyrdu hvernig var partyid yfir urslita League leiknum. Brisbane Broncos voltudu nu alveg yfir tessa Melbourne bua.
Eg helt nu med hvorugum tar til eg sa fyrsta "try-id" hja Storms sem var magnad, svo bara tapa teir, eg var ekki sattur sko.
horfdi a thennan leik enn thetta er alveg glatad sport thetta rugby drals. BTW tha for eg ekki i partyid thvi eg og Vignir vorum latir en straetoar ganga ekki oft um helgar thannig ad labb var ekki moguleiki en thad var horft a AFL-leikinn thar sem West Coast unnu med einu stigi 85-84. Umraedan um frumbyggja her og fa ekki verdlaun fyrir ad vinna barst upp her a sunnudaginn en astaedan fyrir thvi ad their mega ekki vinna er af thvi ad their eru svartir og hafa thess vegna of mikla yfirburdi i ithrottum thannig ad thad er osanngjarnt ad their mega vinna, steikt.
Rugby er ein slakasta íþrótt sem ég hef séð, skil ekki hvernig þetta getur verið vinsælt hérna. Gaurar með engan háls að hlaupa á hvorn annan..
Aussie rules er hinsvegar annað mál og er að koma sterkt inn hérna..
Ja, haldidi ad tad se einhver Aussie Rules leikur a brisbane svaedinu i byrjun desember sem vid gaetum kikt a ?
Tímabilið var að klárast með úrslitaleiknum auðvitað, held að preseasonið byrji ekki fyrr en í Mars.
Takk fyrir ahugaverd blog
Post a Comment
<< Home