Sælar!
Bloggleysi stafar af asnalegu internetsystemi í þessari íbúð, maður fær bara að nota 500mb á mánuði en ég kláraði seinasta kvóta á stuttum tíma vegna klámgláps.
Seinustu vikur hafa verið nokkuð einhæfar, venjulegur dagur hefur verið skóli frá 9-16, svo gæmið og strætó heim klukkan 18:24, eldað og horft á sjónvarpið eða spilað playstation, örugglega eitt af betri múvum sem maður hefur gert að taka hana með.
Hef ekki verið neitt sérstaklega iðinn fyrir utan það, nema að ég hef farið á nokkrar krikketæfingar ásamnt að hafa farið í danstíma í gær. Eflaust vilja einhverjir fá útskýringar á því en ég fór með tappa sem heitir Alberto og er frá Brasilíu, það í landi dansar víst fólk. Held að við höfum verið að læra Vals en kennarinn var einhver hommi frá asíu. Ég var að sjálfsögðu enga stund að læra og heillaði gömlu kellingarnar upp úr skónum enda sami dansinn og maður lærði í versló um árið, auk þess sem kassadansinn er forritaður í mann. Alberto er einnig í enskuskólanum en hef nokkrum sinnum farið í fótbolta með honum, held að hann sé búinn að klobba mig ca. 50 sinnum. Kemur frá Sao Paulo þannig að þetta er vöggugjöf býst ég við. Hann segist vera geðveikt góður í PES4(fyrir gamla fólkið Pro Evolution Soccer 4 en það er playstation 2 tölvuleikur), ætli maður verði þá ekki að taka hann í kennslustund í honum.
Á Sunnudaginn er ég, Vignir, Alberto og 4 japanskar píur að fara í ferð um Tasmaníu. Vonandi að maður sjái Platypus en það er dýrið sem er einsog hálf önd og hálfur minkur eða m.ö.o. dýr sem lýtur út einsog feiti KR-ingurinn.
Chao

7 Comments:
Að þú skulir vera að nema dans af gulum manni með vini þínum frá Brasilíu þykir mér merkilegt. Ofan á það að ertu að fara að skoða önd með fætur - Tóti ég held með þér
Var að koma heima frá þessari ferð, við sáum viltan platypus og náðum nokkrum myndum(Vignir náði myndum). Frekar mikil heppni en gædinn hafði aldrei séð platypus í þeim ca. 80 ferðum sem hann var búinn að fara. Sáum tasmaníudjöfla slást, koala, echidnu, peacock, emúa í dýragarðinum og kengúrur auðvitað en ég steig óvart á halann á einni og viti menn, hún hoppaði bara í burtu. Mjög skemmtileg ferð en Japanir eru án efa með lífsglaðara, fyndnara og steiktara fólki sem maður hittir.
já og hvernig væri að sýna okkur þessar myndir Þórarinn?!
Þú ert fyndinn!
hahahaha, til hamingju tóti þú hefur stigið skrefið sem einungis einn maður (ég) hef þorað að stíga í blogg skrifum. Ánægður með þig.
Ánægður með þig að vera læra dans, eins gott þetta séu samt ekki bara gömlu dansanir. Því ég vill fá að sjá þig púlla einhvern massívan Napoleon Dynamite dans þegar þú kemur heim.
Nú verð ég líka að spyrja hann Jón, "önd með fætur" er það ekki bara sama og önd? Held að flestar af þeim hafi fætur, ef ekki þá hef ég lifað við mikinn misskilning í mörg mörg ár.
Tóti, þegar þú kemur heim þá er það match í PES4. Mano-i-mano.... ég skal sko kenna þér múvin! haha....
Já Kristinn þú ert eitthvað að misskilja...
Já btw, Alberto slátraði mér í pes4, en að tapa fyrir brasílíumanni í einhverju sem tengist fótbolta er ekkert til að skammast sín fyrir. Varðandi komentið hans Nonna, betra að segja bara ekki neitt og ég var að æfa Salsa en ekki Vals
Post a Comment
<< Home