Wednesday, August 02, 2006

Bananar 1000 krónur kílóið

Miðvikudagskvöld sem ætti bara þýða eitt, fyllerí! Ég ætla samt ekki að fara út því ég þekktur fyrir að vera skynsamur. Ég Vignir erum búnnir að taka bekk og krulla bísinn þessa vikuna en við keyptum okkur kort og búnir að fara 5 sinnum á 7 dögum, nokkur góður árangur það. Maður er nokkur þreyttur eftir allt þetta krull svo maður tekur tjillið á þetta næstu 2 kvöld. Fór í keilu í gærkvöldi sem var að sjálfsögðu leiðinlegt því keila er ábyggilega leiðinlegasta afþreyfing sem til er. Ég skoraði 100 og tapaði þar með gegn Dennis, Vigni og Maiken en ég leit út fyrir að vera alveg sama en alltaf leiðinlegt að tapa fyrir hinu kyninu. Eftir keiluna tók ég Dennis í þythokkí sem bjargaði kvöldinu, vann 7-6 en ég skoraði í uppbótartíma. Án efa mesta snilldin við þennan stað er það er alltaf algjört logn hérna, þannig að dúið fer aldrei í klessu líkt og heima. Ekki að maður sé þekktur fyrir mikið dú en samt kostur samt sem áður. Til að fólk viti hvað ég er að tala um í fyrirsögninni en þá er eini hluturinn sem er dýrari hér en á Íslandi eru bananar. Þeir kosta nálægt 1000 krónur kílóið sem svipað og gras haha. Ætlaði að segja eitthvað meira en man það ekki í bili svo skrifa það bara seinna, bleble.

3 Comments:

Anonymous Óskar said...

Heyrðu meistari, þú ferð að tapa meistaratitlinum ef þú ferð ekki út á miðvikudögum.

Verst í heimi geimi er að koma heim þegar það er kveikt á tölvuni, þá segir maður alltaf eitthvað heimskulegt þegar maður fer fullur að reyna að slökkva á henni.

Ég fór á cheap and sleasy tonight, a.k.a. the big kumera (no worries, ég sýni ykkur þennan stað í sumar þegar þið komið í heimsókn) og endaði í eftirparty með stelpuhljómsveitinni sem var að spila. Ég er að segja þér það, bloody wanker að hanga heima á miðvikudegi, það er þá sem hlutirnir gerast.

En já, fyrst þú virðist ekki hafa clue hvað er að gerast á þessu hveli jarðar þá var risastór hvirfilbylur sem fór yfir hluta ástralíu, akkúrat þann hluta þar sem bananarnir eru ræktaðir, í langan tíma var ekkert hægt að fá banana og nú eru þeir að miklu leiti innfluttir og teljast lúxus vara. Bíddu samt í eitt ár og þá eiga þeir eftir að hrynja í verði, ekkert mál.


Og hey, að lokum, fyrrverandi meistari í keilu er ekki alveg sáttur með að þú reynir að gera svona lítið úr þessari göfugu íþrótt bara af því að þú ert ömurlegur í henni og tapar gegn stelpum !

Heyri í þér síðar félagi, þegar ég er ekki algjörlega shitfaced !

2:55 AM  
Anonymous Nonni said...

Ég er með viðskiptahugmynd, ég sendi þér banana og þú mér gras. Hvað er heimilisfangið þitt?

7:13 PM  
Blogger JP said...

hahahahaha..... Tapa fyrir stelpu!!!! Nei, segi svona... tek þetta til baka. Maður á hættu að láta lemja sig ef maður segir þetta. Þarf að ná einhverju góðu spjalli við þig á MSN við tækifæri. Hefur alltaf hitt illa á...

Mig langar í jafngildi "banana" núna.... er að læra fyrir skitið sumarpróf! Hey, hafðu það gott yfir verslunarmannahelgina. Heyrumst...

1:43 AM  

Post a Comment

<< Home