Monday, July 24, 2006

Leiðinleg stelpa

Þessi helgi var nú með rólegra móti en við fórum á barrel night hjá riverrafting klúbbnum í skólanum á föstudaginn. Þetta barrelnight var haldið utandyra en ég og Vignir vissum það ekki svo það var skítkalt en frír bjór allan tímann. Svo það var ekkert annað í stöðunni en að drekka sig til hita en ég hitti t.d. gaur þar sem á heima á eyju fyrir utan Ástralíu þar sem 15 manns búa á. Ætli það sé samt ekki betra en að vera með eyðni og búa í Nígeríu. Á laugardagskvöldið beilaði ég á 2 partýum til að tala við vini og vandamenn sem ég tel vera bara góða fórn. Talaði við Nonna, Kristinn og Unnar en það var erfitt að ná í fjölskyldumeðlimi. Klukkan 2 um nótti náði ég loksins samband við mömmu og pabba en það símtal var afgreitt á 5 mínútum en mamma hafði meiri áhuga að fara að hlaupa og pabbi að fara í Tennis. Greinilegt að manni er sárt saknað heima en hafði ekki haft neitt samband við þau þær 3 vikur sem ég hef verið að utan. Talaði svo við Sigrúnu Dís systur mína en hún er ótrúlega dugleg að finna sér eitthvað að gera. T.d. sagði hún mér frá því að hún hafi verið í Danmörku, leikjanámskeiði, æfa fimleika og hafi verið á hestanámskeiði og er að fara á annað hestanámskeið en býst líka við að hún hafi verið á trampólíninu einsog alla aðra daga ársins. Í dag fór ég að versla með stelpunum sem við Vignir bjuggum með á Liverpool street en þær eru eitthvað skrítnar. Þær spurði hvort við vildum ekki fara að versla með þeim og við ákváðum að vilja það en ég þurfti að kaupa coco pops og mjólk. Eftir að hafa verslað það vildu þær fara á einhverja sinfóníu tónleika sem hljómaði ótrúlega óspennandi. Afþví að við erum ekki algjörir fávitar sem nýtum okkur ekki góðvild annarra fórum við með. Við komumst ekki inn af því að við mættum seint og biðum fyrir utan sem var mjög sad. Ef þessar stelpur væru ekki skrítnar hefði ég sagt "Erum við fávitar hvað erum við að gera hérna, drullum okkur eitthvað annað" en þær eru skrítnar þannig að ég sagði það ekki. Eftir það versnaði ferðin gríðarlega mikið en þá mætti Penny á svæðið en ég held að hún sé leiðinlegri en myndin Tarzan mama mia og Steingrímur Njálson í fermingarveislu til samans. Hún talaði stanslaust um ekkert og ekkert um leiðinlega hluti einsog að fara að mótmæla einhverju en ég var ekki að hlusta því meðan hún var að tala vorum við Vignir að tala um hvað hún væri leiðinleg á íslensku. Svo versnaði þetta meira og meira en ég vil ekki tala um það en Penny byrjaði svo að blæða(án gríns) og ég gerði grín og ég held að þær vilji ekki tala við mig aftur. Ég vitna bara í Mr. Flinston og segi Jabbadabbadú. Eitthvað varð að gera til að bjarga deginum svo ég Vignir Anne, Maiken, Dennis, Pontus, Wesley og Leonus fórum á Metz í 1 bjór og chat fyrir svefnin sem bjargaði ekki deginum alveg því orðið leiðinlegt hefur fengið nýja merkingu í mínum augum t.d myndi ég aldrei skíra krakkan minn Penny eða 1 cent. Svona án gríns, þessar stelpur eru alveg ágætar, ég á bara ekki alveg heima í þeirra vinahópi en þessi Penny er samt freak of nature.

15 Comments:

Blogger JP said...

Hey hey... vissi ekki að þið væruð með blogg. Ætla að gerast áskrifandi númer uno!!!

5:55 AM  
Blogger JP said...

Er Penny ekki ATM eða ATP??? Svona fyrst hún er FON!!!

5:58 AM  
Anonymous Kristinn said...

Hvað er málið með leiðinlegt fólk samt? Það hlýtur bara að sjá hvað það er leiðinlegt, þessi "vinkona" þín þarna er gott dæmi um hvað leiðinlega fólkið er blint á sín eigin leiðindi.

7:03 AM  
Blogger Björk said...

hæ eiginlega ekkert búin að vera heima alla helgina! Hvar eru myndir af öllu skemmtilega fólkinu, langar að sjá hvernig penny litur út.

11:43 AM  
Anonymous Pálmar said...

Er Toadfish byrjaður að safna tagli?

9:30 PM  
Anonymous Nonni said...

Þórarinn horfir á línuna og gengur yfir hana, ég held með þér og vona að þú komir heima með tagl, kleinuhringja skegg og eyrnalokk.

8:20 PM  
Blogger Þórarinn said...

ætli skeggið myndi ekki líta einsog svigi opnast, svigi lokast á hlið ef maður reyndi að safna. En þeir sem fylgjast með Neighbours vita náttúrulega að Toady er orðinn stuttklipptur lögfræðingur. Neighbours er annars bara old hér en það er önnur áströlsk sápuópera hér sem heitir home and away sem miklu betri. Hún lýsir sér í stuttu máli þannig, verri leikarar,fullt af fallegum leikkonum.

12:51 AM  
Blogger Björk said...

Já fólkið í nágrönnum er orðið óttarlega ljótt. Það er grundvallaratriði að hafa fallega leikara í svona.

4:20 AM  
Blogger JP said...

Leiðinleg stelpa!?! Manstu eftir Maríu Sif??? Gerast ekki verri en það, er það nokkuð?

Tóti, ég hef tekið sem svona sápuóperugaur. Er ég alveg að misskilja þig...

11:15 PM  
Blogger JP said...

Átti að vera "Ég hef EKKI tekið ÞIG sem svona...". Já, svona er maður skrifblindur...

11:16 PM  
Anonymous Eva María said...

Hahaha! Þetta eru snilldar lýsingar hjá þér Tóti... Já hvað er verra en að sitja uppi með leiðinlegt fólk heilt kvöld...

Komdu svo með myndir af fólkinu :)

6:24 AM  
Anonymous Anonymous said...

Here are some links that I believe will be interested

8:51 AM  
Anonymous Anonymous said...

Here are some links that I believe will be interested

8:17 PM  
Anonymous Anonymous said...

This site is one of the best I have ever seen, wish I had one like this.
»

11:45 PM  
Anonymous Anonymous said...

I really enjoyed looking at your site, I found it very helpful indeed, keep up the good work.
»

10:11 AM  

Post a Comment

<< Home