Don't mess with the Koreans
Lítið búið að gerast þessa viku en fyrir utan skólann. Fór náttúrulega á miðvikudagsfyllerí en það er hefð hér sem Kristinn og Unnar myndu ekki hata haha. Var soldið blekaður eða megatitted ef maður á að sletta á Ástölsku. Ég, Vignir, Sasha og Christine vinkona Söshu og heil southern comfort flaska byrjuðum heima hjá okkur. Fórum svo á Metz og ég reyndi að búa til einhvern brandara með apa sem var ekki að virka en ég held að brandarinn fái ekki að komast á bloggið en hann var mjög slakur haha. Í dag var ég svo í hléi en ég tala mest við gaur frá Suður-Kóreu í bekknum mínum en hann við vorum að tala við 2 af vinum hans. Félagi hans var að tala í símann en hann hélt á honum með hægri hendi og hlustaði með vinstra eyra og ég gerði grín að honum fyrir framan vini hans og sagði að hann hélt að hann væri geðveikt massaður. Félagar hans tóku bara vel í grínið og gerðu líka grín að honum. Eftir það spurði ég hvort að það væri algengt að æfa bardagaíþróttir í Kóru en hinn gaurinn var greinilega búinn að vera að narta í lóðin. Hann sagðist æfa 4 bardagaíþróttir og sagði svo að í Kóreu er skilda fyrir alla karla að hafa svarta beltið í Taekwondo fyrir tvítugt. Ég sá strax eftir að hafa gert grín að vini hans og reyndi að smoothtalka hann því ég var smá hræddur eðlilega en það gekk sem betur fer. Svöl hefð samt sem áður en þar sem glíma er bara fyrir nörda og sveitalúða ættum við Íslendingar ekki að taka þetta upp. Ef einhver sem les þetta sem æfir glímu segði ég bara catch me if you can hahaha. Er núna að fara til Dennis og Maiken en Vignir og hún voru að gera humm humm í næsta herbergi á miðvikudagskvöldið held ég. Bless þangað til næst, reyni svo að vera duglegri að svara commentum en er ekki búinn að vera nógu duglegur við það.

8 Comments:
Tóti, þú hefur nú aldrei verið þekktur fyrir að skafa af hlutunum. Ánægður með það!!! Halda því áfram...
Þarna þekki ég þig, Southern Comfort!
Einsog bróðir minn sagði þetta blogg er fyrir fjöruga fýra en ekki beyglur.
Góður Vignir! ;)
Og halda áfram að segja hlutina eins og þeir eru Tóti... haha ;)
Here are some links that I believe will be interested
Here are some links that I believe will be interested
Hey what a great site keep up the work its excellent.
»
Looks nice! Awesome content. Good job guys.
»
Post a Comment
<< Home