Bjórkvöld!
Á eftir er bjórkvöld eftir 2 tíma en það kostar 600 inn og maður má drekka endalaust á barnum fyrir það. Lenti í mjög vandræðalegu atviki í morgunn en þá var ég að labba á strætóstoppistöðina og sá að strætó var alveg að koma. Ég hljóp að stoppistöðinni og náði í tæka tíð og tók upp "10 tripperinn". Eftir það gerði ég mig tilbúinn að labba inní strætó en þá keyrði strætóinn framhjá mér en þá stóð ég vitlausu megin á götunni en það er víst keyrt vitlausu megin hér á landi. Búinn að vera duglegur að þvo þvottinn minn og elda sjálfur en held að það verði beikon í matinn næstu vikuna því það var bara hægt að kaupa 750 gramma pakka. Er við það að skrá mig í Underwater hockey klúbbinn hérna en ég veit ekki alveg hvernig sú íþrótt fer fram en ég býst við að það sé einhverskonar hokkí í scubadiverbúningum einsog nafnið gefur til kynna. Maður er svona ennþá að koma sér fyrir en ég held að ég ætti að geta hringt heim á morgunn en skypeið er eitthvað að klikka en ætti að vera komið í lag á morgunn. Svo vinir og vandamenn mega gera sig tilbúna fyrir hringingu. En það er rugldýrt að hringja hérna svo maður vill nýta tæknina. Það er erfitt að tímasetja hringingarnar hér en við erum 10 tímum á undan hérna. Er búinn að reyna að ná fólki á msn en hef aldrei náð að hitta á neinn online á Íslandi meðan ég er í Tasmaníu en ég talaði við Björk á leiðinni hingað. Veðrið er búið að vera mjög gott en veðurfréttirnar hérna eru mjög skrítnar t.d. var spáð í dag "frost then fine" og daginn þar á undan "mainly fine" en það eru u.þ.b. einu upplýsingarnar sem maður fær. Held að þetta sé heitasti dagurinn so far eða um 15° hiti. Hef reynt að bæta setningarnar í þessu bloggi eftir kvartanir í kommentum en "batnandi mönnum er best að lifa" eitthvað svoleiðis. Þangað til næst bless bless en ég væri til í að fá komment frá fleirum í fjölskyldunni en engin pressa samt.

11 Comments:
Drekktu til að gleyma og nældu þér í eina gula, það er eina leiðin til að lifa lífinu
Hvað finnst Vigni um það að það verði alltaf beikon í matinn?
Mér finnst þetta skemmtilega punkta-, samhengis- og siðferðislaust blogg og styð þig í að halda uppteknum hætti. Þú átt að skrifa fyrir fjöruga fýra en ekki reiðar konur! Hvernig eru ástralskar og gular, eru þær reiðar?
Mjög fyndið líka að búa með grænmetisætu og bræla allt með beikoni fyrstu vikuna. Hann á það kannski skilið ef hann mætir með spergilkál inn í íbúðina.
Hahaha, þetta með strætóinn er klassík, ég lenti í því sama nánast. Stóð öfugu megin að bíða eftir strætó og rétt fattaði það í tæka tíð.
Hvernig er það annars með ykkur kumpána, síðast þegar ég sá ykkur var ekki étið neitt kjöt og nú ertu kominn í ofurbeikon !
Ég held að ég lifi beikonbræluna af þangað til pakkinn er búinn, en annars er ég líka búinn að vera í beikoninu því ég keypti "vegetarian bacon" (?) hérna..
En mig varðar lítið um hvað tóti eldar því ég mun seint leggja mér eitthvað til munns sem hann eldar enda hefur hann ekki verið þekktur fyrir takta í eldhúsinu hingað til..
Held að þetta grænmetisbull sé að taka yfir heiminn en fór út að borða á hamborgarastað með 6 manns í vikunni en ég var eina kjötætan. Það var ekki mín hugmynd að fara á hamborgarastað þannig að ég veit ekki hvað grænmetisætur vilja þangað. Btw allir hamborgarar hér eru með rauðrófu sem er frekar spes og ef einhver í fjölskyldunni er að hugsa um að skrifa "einu sinni borðaðir þú bara rauðrófur á jólunum" skaltu sleppa því. Fólk má nú ekki taka öllu með alvöru sem maður skrifar hér. Stelpurnar hér eru sumar hverjar "stórbeinóttar" en bic mac máltíð hér kostar 240 kall. En þeirra til varnaðar þá hafa þær allar ótrúlega góðan persónuleika.
Veit nú ekki betur en að ég og Þórarinn elduðum stórglæsilega veislu handa 14 manns hér um daginn. Ekki heyrðu ég neinn kvarta þar... nema kannski grænmetisætuna.
Reyndar gerði ég allt þannig að þetta gæti verið rétt hjá þér Vignir.
Ég tvíburasystir mommu þinnar átti líka afmæli sama dag. Ég les líka bloggið þitt sem er hin mesta skemmtun . Ekki voða reið frænka.
Frábært að sjá að hlutirnir ganga upp hjá ykkur félögunum ;)
Nú fylgist maður með ykkur :)
Hmm I love the idea behind this website, very unique.
»
Your website has a useful information for beginners like me.
»
Post a Comment
<< Home