Frekar steikt að þegar við vorum duglegir í gyminu var helmassaður og cuttaður gaur alltaf að lyfta þar. Seinna sáum við Vignir í blaðinu að þetta var Mr. Australia, munum samt ekki nafnið á kappanum. Svo fyrir ca. 2 vikum vorum við Vignir að spila Tennis og það voru 2 mjög góðar stelpur að spila á næsta velli. Í blaðinu í gær var mynd af annari þeirra, henni Önnu, en sú er best í Tasmaníu. Verð að viðurkenna að maður leit út einsog skítur að spila hliðiná á þeim en við svindluðum okkur á þennan völl, kunnum náttúrulega ekki neitt og einhver meistari að spila hliðná okkur. En maður leit alltílagi út í gyminu því maður lítur alltaf betur út en feita fólkið sem er að reyna að grennast.
Fór í partý í gær, seinasta partýið með fólkinu sem maður kynntist hér en það eru allir á leiðinni heim eða frá Tasmaníu allavega á næstu dögum. Ég gleymdi myndavélinni minni í gær en ég ætlaði að taka video af fólki segja það sem ég var búinn að kenna þeim í íslensku. Setningin sem ég kenndi flestum var "Ég svaf hjá mömmu þinni, systur þinni og kærustinni þinni, farðu í rassgat". Pontus náði þessu helvíti vel enda ætlar hann að nota þessa setningu þegar hann kemur til Íslands.
Nú erum við, ég, Vignir og Maiken, að fara að pakka fyrir ferðina til Nýja Sjállands. Þar ætlum við að hitta Óskar sem er btw rauðhærður. Við ætlum að leigja húsbíl og taka roadtrip um báðar eyjar landsins, norður og suður eyjuna. Frá NZ fljúgum við svo til Brisbane, þaðan förum við til Gold Coast og ætlum okkur að leigja hús þar. Ætla að reyna að leita mér að vinnu þar, einhverjar uppástungur hvar ég ætti að sækja um væru kærkomnar.
Mun örugglega ekki blogga neitt núna fyrr en í desember en þá mun koma massívt blogg með myndum frá ferðinni í Nýja Sjállandi, bless í bili.